Skilmálar
ALMENNT
Líkami og lífsstíll ehf. er innflytjandi Sci-MX fæðubótarefna. Líkami og lífsstíll ehf. tekur enga ábyrgð á innsláttarvillum eða röngum upplýsingum sem birtar eru á vefnum. Þá eru meðtalin verð og vörulýsingar. Líkami og lífsstíll ehf. áskilur sér rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Við förum að sjálfsögðu eftir lögum um rafræn viðskipti, sjá lög um rafræn viðskipti nr. 30/2002, og lögum um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000. Einnig förum við eftir siðareglum Samtaka verslunar og þjónustu um netviðskipti en erum þó ekki aðilar að þeim samtökum.
AFHENDING VÖRU OG GREIÐSLA
Afhending vöru fer einungis fram með póstsendingu eða í verslun Líkama og Lífsstíls ehf. sem er staðsett í Sporthúsinu, Dalvegi 9-11 Kópavogi. Afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts gilda um afhendingu vörunnar. Líkami og lífsstíll ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Líkami og Lífsstíll ehf. áskilur sér einn virkan dag til að afgreiða pöntun og koma til Íslandspósts.
SKIL EÐA SKIPTI Á VÖRUM
Þú hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þú hafir ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Ef verðbreytingar verða á vöru á þessum 14 dögum er hún tekin til baka á gildandi söluverði þann dag, þó ekki á hærra verði en upprunalegu verði vörunnar.
HÖFUNDARRÉTTUR OG VÖRUMERKI
Allt efni á Sci-MX.is, texti, grafík, lógó, hnappar, táknmyndir, myndir og hugbúnaður er eign Líkama og lífsstíls ehf. Sci-MX er vörumerki sem er skráð og má ekki nota í tengslum við neina vöru eða þjónustu án skriflegs leyfis frá Líkama og lífsstíl ehf.
Skilmálar þessir eru almennir verslunarskilmálar Sci-MX.is og tóku gildi þann 15. nóvember 2005.





